..:: Velkomin ::..
Dagsetning
9. febrúar 2012
20.11.2008 12:51:07 / Olina

www.123.is/tudrurnar

Notum þessa bara!!:)
Ólína getur bara einbeitt sér að einu í einu!

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2008 23:35:06 / Olina

Sumarbústaðarferð??

ok bara að viðra þessa hugmynd, af því það var svo gaman hjá okkur síðast... hvað segiði um að finna helgi núna bráðlega til að fara í bústað... síðustu helgina í nóvember eða eitthvað? þá geta sumir komið föstudag til sunnudags en aðrir (námshestar og fleiri) bara laugardagsgrill og smá pott og farið snemma heim á sunnudegi???

getum haft Barna, kalla og konu bústaðarferð... allir saman í góða stemmingu

grill
pottur
spil
rólegheit
kósý
sötr:)

hvað segiði?


Ólína með fráhvarfseinkenni frá ykkur

» 24 hafa sagt sína skoðun

02.11.2008 21:11:11 / Kristjana

Takk æði fyrir æði kvöld

:) Takk fyrir kvöldið allar mínar uppáhalds!!

Þetta var ekkert smá gaman í allastaði, Palli veikur hvað er það... en skipti engu máli.. Láki stendur alltaf fyrir sínu!

Ætla að byðja ykkur að fylgja mínu frumkvæði og henda inn myndunum sem þið tókuð, ef þið getið það þeas, gekk ekki mjög vel og komust bara hluti af myndunum inn.. en þið gerið hvað þið getið :)

Takk fyrir mig (sérstaklega til þín Rósa, er búin að háma í mig rúllurnar þínar í allan dag :) ummm love it)

Yfir og út......... luv , knús og koss

» 17 hafa sagt sína skoðun

25.10.2008 10:21:59 / Kristjana

Barcelonahittingur..

Tími: 1. nóvember 2008

Staður: Kirkjuteigur 17, Keflavík,  Kristjana´s place

Kl: 19:00

Næring: gestgjafi býður uppá kjúllarétt eða kjúlla súpu.

Þema: lita þema, allir að velja sér sinn lit.

Koma með: Góða skapið, kokteila, kjaftasögur, vísur og allir að koma með eh til að narta í um kvöldið.


:) Hlakka til að sjá ykkur eftir akkúrat viku!!!

» 24 hafa sagt sína skoðun

21.10.2008 11:43:16 / Sara

Nú er úti norðan vindur..

...Sara situr inni..
...ekki er hiti í minni...
...úmbarassa úmbarassa........

Jæja mínar kæru. Er það satt sem ég er að heyra? Ótrúlegir hlutir sem maður heyrir alla leið á Akureyri!!

En hvað um það, kreppa, sleppa, má bjóða þér nýsleppu? (10 evrur til þeirra sem vita hvað nýsleppa er)

Sit hérna inni, veit ekki hvað ég á af mér að gera, þyrfti að fara græja háddegismat, ætti að vera að læra en í staðinn heng ég í tölvunni!
Lítið að frétta héðan af Akureyri. Jú það snjóar, í gær var bylur úti en í dag er hið fallegasta vetrar veður. Allt hvítt og manni langar bara út að renna sér.

Ég vona að hin svokallaða kreppa sem virðist halda öllum landanum í harðsperrum sé ekki að leika ykkur grátt. Ef svo er mæli ég með því að þið skellið ykkur í ljós til að fá smá lit.. nema Klara, hún má ekki fara í ljós!
Við finnum svosem lítið fyrir henni þannig. Að sjálfsögðu hafa allar afborganir hækka sem nemur verðbólgunni en lítið hægt að gera við því núna. Um að gera bara að fá sér kaffi og eitthvað með því.
Ég skellti mér í ræktina fyrir hálfum mánuði síðan og hamast núna eins og flóðhestur á mökunartímabilinu. 3 í viku eru það lyftingar og 2 í viku er það box. Eins gott að kílóin fjúki með norðan áttinni!! Get ekki mikið hlaupið ennþá eða gengið langar vegalengdir án þess að finna fyrir grindinni en  það kemur, einhverntímann.... Klara ég vona innilega að þú verðir laus við þetta rugl.
En allavega ræktin er það og vonandi sem fyrst tekur fjallið við.. jei jei jei (núna hoppið þið af kæti eflaust hehe) Þeir eru farnir að framleiða snjó upp í fjalli svo vonandi styttist í opnun. Eins og venjulega eru þið ávalt velkomnar með skíðin í annari til okkar. Jaa eða brettið (linda, ólína).

Ég er búin að setja markið á að koma til ykkar í nóvember og skála í kotkeilum, kingjandi snakki og smjattandi á kjaftasögum.
2.helgin í nóvember væri ALVEG MAVELESS hvað það varðar ef það er í lagi ykkar vegna. Kristjana byrja að baka núna og setja í frystinn;)

Jökull byður að heilsa ykkur og vonast til að við getum hist í nóv.
kossar og knús á ykkur allar
Sara


» 16 hafa sagt sína skoðun

22.09.2008 09:18:18 / Olina

Boulevux, aha aha

Takk fyrir gott heimilisráð, við sem kunnum ekki að elda kunnum vel að meta öll ráð sem hjálpa! og til hamingju með afmælið Klara um daginn:lol: Ég skal lofa að minna ykkur á mitt afmæli svo sumir fái ekki samviskubit yfir því að gleima! hehe

Ég er að fara til Frakklands að spila handbolta og fer á miðvikudaginn og verð í viku. Leikurinn er á laugardaginn næsta og verður í beinni útsendingu!!! allir að horfa og öskra Áfram Ísland!! handboltinn er náttúrulega orðin stærsta íþróttin á íslandi eftir gott gengi silvurstrákanna okkar. En við ætlum að vera eftir í París og skoða okkur um í 3 daga, eruði með einhverjar suggestions yfir hvað við ættum að skoða??

En hvað segiði um að hafa eitt stórt afmæli bara í oktober eða nóvember... þar sem við fórum nú ekki til Barcelona þá þýðir það ekki að við getum ekki allar hist og haft barnadag um daginn og svo skemmtanakvöld um kvöldið fyrir okkur óóléttu og barnlausu;) hehe. Þetta getur verið svona sameiginlegt tudruafmæli með spænsku ívafi? whatdoyousay???

Kveðja,
Ólína bikarmeistari8) digidigibomm

» 33 hafa sagt sína skoðun

17.09.2008 09:13:44 / Kristjana

Heimsins sniðugast heilræði...

Hvernig skal skera lauk, táralaust!!!

Hver kannast ekki við það að vera með eldrauð svíðandi augu og hágrenjandi yfir matargerðinni...

En ég Krissa klára kann sko ráð við því að þurfa aldrei að gráta laukinn aftur!!! (og ef eh kunni þetta ráð áður þá er hann fíbl að láta okkur hin ekki vita fyrr)

En galdurinn er að skera fyrsta skurðinn á réttum stað... þe skera flata endann af lauknum af fyrst (ekki þann enda sem stendur út í loftið) og flysja hann svo og brytja hann svo niður eins og þig lystir!

Með því að skera fyrst af botninn (flata endann) og flysja svo, ertu laus við öll tár :)

Ótrúlegt en satt!!!
Nú er bara að fá sér eitt stykki lauk og prófa, maður trúir þessu ekki fyrr en maður prófar sjálfur :)

Yfir og út stelpur.... Kv viskubrunnurinn

» 6 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 22:03:49 / Klara

Hún á...


Afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Kristjana. Hún á afmæli í dag. 

Hipp hipp... húrreyy


Til hamingju með daginn músin mín :*  Vona að dagurinn hafi verið góður, og kvöldið verði ennþá betra ;)



» 8 hafa sagt sína skoðun

21.08.2008 14:59:04 / Klara

Kaffitímahittingur?


Eftir nokkur símtöl þá hefur sú ákvörðun verið tekin að hittast ekki í kvöld eins og rætt hefur verið í kommentum dagsins :) 

Það henta svo mismunandi tímar hópnum, þannig að ég ætla að koma með uppástungu.

Kristjana kemst alltaf á daginn - líka á kvöldin, nema ef hittingur er heima hjá henni, þá þarf snúðurinn hennar að lúlla sér og það getur gengið illa með fullt hús af fólki :)

Klara kemst alltaf - nú þegar skólinn er byrjaður, er aldrei lengur í skólanum en til 3, og er í fríi á mánudögum og fimmtudögum (þ.e. er ekki í tímum en nottla að læra á fullu ;))

Rósa byrjar í skólanum eftir helgi, þ.e. 25 ágúst, þannig að þá getur hún minnkað töluvert við sig kvöldvinnuna, og jafnvel hagað vinnunni þannig að hún verði í fríi þegar hittingur er planaður :)

Linda hættir að vinna 27. ágúst (miðvikudaginn) og getur þá hitt okkur hvenær sem er. Skólinn hjá henni byrjar minnir mig 1. sept þannig að við höfum smá svigrúm til að heimta hana út af fyrir okkur þangað til :)

Ólína er í vaktavinnu - hittingur fer því eiginlega eftir því hvenær hún er í vaktafríi.

Teresa er heimavinnandi húsmóðir - kemur þegar við köllum ;)  eða svona nánast... haha.

Margrét er reyndar vinnandi alla daga, en hún ræður sér töluvert sjálf, þannig að það er spurning hvort hún geti hagað tímabókunum hjá sér í klippingu þannig að hún fái að hætta aðeins fyrr þann dag sem við viljum hittast. :)

Ef ég gleymi einhverjum, ekki vera reið. Ekkert persónulegt.

Þess vegna segi ég.  Hvernig lýst ykkur á hitting á fimmtudaginn eða föstudaginn í næstu viku?  Ekki um kvöldið, heldur um daginn, kannski um 3 leytið, borða vínarbrauð og kakó, börn velkomin og fara kannski í labbitúr ef veður leyfir eða eitthvað skemmtilegt?
Ólína hvenær ertu í vaktafríi og fótboltaæfingafríi?

Eftir því sem ég best veit ætti annar hvort þessara daga að henta. Ef ekki, látið í ykkur heyra :)

Eigið góða menningarnótt :) 

kv, önnur tilvonandi mamman ;)

» 11 hafa sagt sína skoðun

07.08.2008 21:47:32 / Kristjana

takk fyrir takk

Vildi bara henda inn nokkrum línum og þakka ykkur fyrir frábæra verslunarmanna helgi :)  Þetta var sko bara gaman í alla staði... Æðislega gaman að sjá litlu músina hennar Teresu og nú getur maður ekki beðið eftir að þið hinar ungið út mýslunum ykkar :haha:  það er ekkert smá gaman að þessu og svo satt sem einhver sagði, að þegar ein brýtur ísinn þá fylgja hinar fast á eftir! nú erum við bara að komast í meirihluta sem eigum gríslinga :)    En allavega til hamingju með bumburnar ykkar skvísur!

Svo líka vil ég líka senda Söru hamingjuóskir með skírnina á guttanum :) okkur þótti voða leyðinlegt að koma ekki, þó svo að við vorum svona nálægt... vorum bara alveg komnar með uppí kok að keyra svona mikið og lillinn minn líka... ekki það skemtilegasta sem hann gerir, að sytja í bíl. Klara mín fékk sko að finna það á leyðinni, var sko í fullri vinnu að gefa að súpa og narta og gilla og leika og ég veit ekki hvað og hvað :) takk fyrir skvísin mína


En svo verðum við bara að ákveða næsta hitting.. er þaggi...    viljiði kanski kíkja í keflavíkina til tilbreytinar í kaffiboð :)

knús í kaf..... lov  Kristjanan

» 19 hafa sagt sína skoðun

28.07.2008 14:15:27 / Klara

Verslunarmannahelgin

Ég vil byrja á því að þakka tudrunum fyrir frábært kvöld :)  Ógillega gaman að fá alla heim og skrafa saman um lífið og veginn og deila leyndarmálum ;) . Leikurinn verður endurtekinn innan skamms :)

En að öðru: Ferðalagi.

Strákarnir virðast ætla að fara í sumarbústað á snæfellsnesi um verslunarmannahelgina, skilst mér. Eftir því sem Tommi veit best getur öll Keflavík gist þarna, því það eru nokkur herbergi, og svo er líka svefnloft.8|

Ég náði ekki að fylgjast með því sem þið ákváðuð að gera (voruð að tala um að gera) í hittingnum. Voruð þið að tala um að fara eitthvert austur?  eða.. koma á sama stað og strákarnir?  :haha:

Veit ekki hvort það sé garður hjá bústaðnum sem hægt væri að tjalda á eða hvað, ef fólk vill það frekar. En þetta er allavega staðan á helginni hjá okkur

:) Hvernig langar ykkur að verja verslunarmannahelginni?  8)

» 10 hafa sagt sína skoðun

22.07.2008 21:06:48 / Klara

saumó?

Engin útilega síðustu helgi. Enginn hittingur heldur. Hittumst reyndar flestar í skírninni hjá Tezy og fórum kannski aðeins fram úr okkur og fleirum í umræðuefnum 8| 

Mig langar til að við hittumst. Hvernig er helgin hjá ykkur?  Svo ógisslega langt síðan við hittumst. Eigum ennþá inni cosmó kvöldið okkar :) Ekkert planað um helgina hjá mér held ég. Þannig að nú verðið þið bara að segja til hvort þið séuð lausar.

Ef helgin er handónýt þá verðum við bara að hittast á virkum degi :haha: 

Missing my girls..  :$

Klara


» 12 hafa sagt sína skoðun

14.07.2008 01:47:39 / Olina

Tuðrupartý

já sælar, ég hreynlega missti af umræðunum fyrir helgina þannig að ég s.s. var ekki með í hitting:( En það gerir ekkert til því nú ætla ég að henda fram hugmynd um hitting á föstudagskvöldið 18. júlí? Mig langar í stelpu djamm og skemmtilegheit:) Eða útileigu um helgina ?? bara henda fram hugmyndum:)

Látið heyra í ykkur!

Ólína

» 3 hafa sagt sína skoðun

01.07.2008 10:58:29 / Klara

Smá mont :)

Já, ég ætla að núa ykkur því um nasir að ég er að fara erlendis í sólina í fyrramálið :)  Það verður ljúft að renna niður nokkrum ísköldum í steikjandi sólinni á Roskilde festival. Liggja eins og skata í grasinu og hlusta á ljúfa tóna óma úr fjarlægð. Sjúga í sig margbreytileika menningarinnar sem þarna er, skoða sígauna sölubásana, éta risa bakaða kartöflu með skinku, grænmeti og jógúrtsósu, versla e.t.v. pínulítið, ef ég finn eitthvað mega ódýrt þar sem gengið er að gera út af við okkur íslendingana þessa dagana. Helv.. danska krónan er 17 krónur!!!  Heimildin fljót að klárast við þær aðstæður :)

Snúðurinn hennar Teresu er draumur í dós. Mig langar að eiga hann.

Ég sé að það er komin ný skoðanakönnun inn á vefinn okkar. Við erum heldur betur ósammála um hver er næst :)  Allir búnir að fá atkvæði, og Teresa búin að fá tvöö. Hvað segiru mom, eitthvað sem þú ert ekki að segja okkur? ;) 

» 21 hafa sagt sína skoðun

26.06.2008 12:15:50 / Sara

Fótboltaveisla í dag

Veit ekki hvort þið hafið lesið 24 stundir í dag en þar eru flottar stelpur á forsíðunni.. hehe


Edda og Ólína príða forsíðuna og svo er viðtal við Eddu inn í blaðinu;) Nokkuð flott bara.
Langaði í kjölfarið að senda þeim stöllum baráttu kveðjur fyrir leikinn í dag og vona að þær rúlli þessu upp. Við Jökull fylgjumst spennt með í sjónvarpinu og sjáum fram á fótboltaveisla langt fram á kvöld bara.


boltar og mörk

Sara og Jökull


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.